Skip to Content

Persónuverndarstefna

Bara Þrífa ehf. (kt. 630926-0410), Austurhólum 2, 800 Selfossi, ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem lýst er hér.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú óskar eftir tilboði fáum við þær upplýsingar sem þú skráir í formið: nafn, fyrirtæki, kennitölu, síma, netfang, heimilisfang húsnæðis og lýsingu á verkinu.

Til hvers við notum þær

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara beiðninni og gera tilboð og, ef þú verður viðskiptavinur, til að veita þjónustuna og innheimta fyrir hana.

Hvar þær eru geymdar

Beiðnin berst okkur í tölvupósti og er geymd í tölvupósti og viðskiptakerfum okkar. Við seljum ekki upplýsingarnar og deilum þeim ekki með öðrum nema lög krefjist þess.

Hversu lengi við geymum þær

Við geymum upplýsingarnar eins lengi og þörf er á í þeim tilgangi sem lýst er hér að ofan. Bókhaldsgögn eru geymd eins lengi og lög krefjast.

Vafrakökur

Vefurinn notar þær vafrakökur sem hann þarf til að virka. Greiningarkökur eru aðeins notaðar ef þú samþykkir þær í vafrakökuborðanum.

Réttindi þín

Þú getur óskað eftir að sjá, leiðrétta eða eyða upplýsingum þínum með því að hafa samband í [email protected] eða 864 3237.